Gisting í dönsku sveitasælunni

    Síðan 1997 höfum við boðið heimagistingu í sveitasælunni 5 km frá Legolandi og nýja vatnagarðinum Lalandia Billund sem er flottasti vatnagarður í Evropu. Frá okkur eru 8 km á Billundflugvöll og rúmir 20 km í safarídýragarðinn Löveparken. Herbergin eru rúmgóð, öll með sjónvarpi og þráðlausu interneti og það er pláss fyrir allt að 6 gesti í sumum þeirra. Það eru sameiginlegar snyrtingar, fullbúið eldhús og rúmgóð borðstofa. Aðgangur er að þvottavélum. Utandyra er gott pláss með leiktækjum, borðum og stólum og geiturnar gera alltaf lukku hjá bæði börnum og fullorðnum. Við búum ca 300 frá þjóðveginum svo engin hætta er fyrir börnin. Góðar gönguleiðir. Hjá okkur gista margir aftur og aftur, frá einni nóttu til tveggja vikna og sérstakt tilboð er ef gist er samfleitt í 7 nætur, þá er aðeins greitt fyrir 6 nætur. Uppbúin rúm og morgunverður er innifalið í verðinu.

    Á þessari síðu eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um okkur og næsta nágrenni sem gott væri að lesa ef þú hyggur á ferðalag hingað og að sjálfsögðu til að fá þig til að gista lengur hjá okkur.

    Verið hjartanlega velkomin.

    Bryndís og Bjarni

    Hvenær er laust - Skoðaðu dagatalið

    << 2012 >>
    S M Þ M F F L
          1 2 3 4
    5 6 7 8 9 10 11
    12 13 14 15 16 17 18
    19 20 21 22 23 24 25
    26 27 28 29      
    Núverandi mánuður
    2012 - mars
    2012 - apríl
    2012 - maí
    2012 - júní
    2012 - júlí
    2012 - ágúst
    2012 - september
    2012 - október
    2012 - nóvember
    2012 - desember
        = Laust     = Nær fullbókað     = Fullbókað

    Bjarni - 03.01.12, 23:13

    Flug til Billund 2012.

    Þrjú flugfélög fljúga frá Keflavík til Billund sumarið 2012.

    Icelandair, Iceland Express og Heimsferðir.

    Við viljum benda gestum okkar á að stundum er lent í Billund að nóttu eða mjög snemma morguns og ef þið viljið fá herbergi við komu þá þarf að bóka herbergið frá kvöldinu áður, annars losnar herbergið að öllu jafnan ekki fyrr en um hádegi.

    Prentvæn útgáfa

       
      Bryndís og Bjarni, Grindstedvej 51, 7184 Vandel, Danmörk
    Símar: +45 75885718 og +45 20335718, Email: bjonsson@privat.dk
     

      Núna: 3
      Í dag: 121
      Í allt: 41724